Tónlist

Dikta skoðar Þýskalandsmarkað

Alma Guðmundsdóttir skrifar
Dikta vinnur nú að nýrri plötu sem Sena mun gefa út í haust.
Dikta vinnur nú að nýrri plötu sem Sena mun gefa út í haust.
„Þetta er komið svo stutt á veg að það er allt óráðið enn þá," segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari Diktu, um hugsanlega útrás hljómsveitarinnar til Þýskalands. Hann segir óvíst hvort flutningar séu í spilunum, en verið sé að skoða alla möguleika.

„Við erum að velta því fyrir okkur að fara til Berlínar. Ég hef aldrei komið þangað en allir sem ég hef talað við bera borginni vel söguna. Þetta er mikil listamannaborg og var náttúrlega höfuðborg lista í Evrópu á sínum tíma," útskýrir Haukur.

Dikta er nú að vinna sína þriðju plötu sem kemur út í haust. Aðspurður segir Haukur þá félaga nota öll kvöld og helgar í upptökur, en hann starfar sem læknir á bráðamóttökunni við Hringbraut. Jón Þór Sigurðsson trommari er að ljúka atvinnuflugmannsprófi og þeir Skúli Gestsson bassaleikari og Jón Bjarni Pétursson gítarleikari eru báðir í kennaranámi. Þrátt fyrir miklar annir láta þeir tónleikahald ekki sitja á hakanum.

„Við erum að spila á Batteríinu í kvöld ásamt hljómsveitunum Mammút, Agent Fresco og Cliff Clavin. Við verðum í upptökum í dag og á morgun svo við hlaupum bara út úr stúdíóinu til að fara á þetta gigg," segir Haukur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.