Körfubolti

Shaq á leiðinni til Cleveland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos/AFP

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því í dag að Shaquille O´Neal sé á leiðinni til Cleveland Cavaliers frá Phoenix Suns. Fréttirnar eru ekki staðfestar en eru sagðar koma frá traustum heimildum.

Hermt er að Ben Wallace og Sasha Pavlovic fari í skiptum til Phoenix.

Cleveland hefur verið að spá í Shaq síðan í febrúar er félagið var næstum búið að fá tröllið til félagsins. Þá hætti Cleveland að lokum við en vandræðagangurinn á liðinu í úrslitakeppninni gegn Orlando hefur fullvissað forráðamenn liðsins um að þeir verði að fá mann sem geti varist Dwight Howard.

Þeir ætla því að veðja á hinn 37 ára gamla O´Neal sem átti flott tímabil með Suns síðasta vetur er hann skoraði 17,8 stig að meðaltali og tók niður 8.4 fráköst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×