Körfubolti

Iverson: Gríðarlega spenntur að heyra hvar ég enda

Ómar Þorgeirsson skrifar
Allen Iverson.
Allen Iverson. Nordic photos/AFP

Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er nú nálægt því að ná lendingu í sínum málum ef marka má Twitter-heimasíðu kappans en hann hefur verið orðaður við fjöldan allan af liðum í NBA deildinni í sumar.

Miami, New York og Charlotte eru nú sterklega orðuð við leikmanninn sem er fáanlegur á frjálsri sölu.

Iverson segir að hans fólk sé að vinna í málunum og nú loksins sé þess að vænta að eitthvað komi út úr þessu.

„Mér hefur verið tjáð að ekki sé langt í land með að ganga frá samningum. Ég er fullur eftirvæntingar og mér hefur ekki liðið svona síðan í nýliðavalinu árið 1996.

Þá vissi ég reyndar hvert ég væri að fara en nú hef ég ekki hugmynd og bíð spenntur eftir því að fá að vita það," segir meðal annars á Twitter-síðu Iversons.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×