Körfubolti

Dwyane Wade biður Lamar Odom um að koma heim til Miami

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lamar Odom í leik með Miami Heat tímabilið 2003 til 2004.
Lamar Odom í leik með Miami Heat tímabilið 2003 til 2004. Mynd/AFP

Dwyane Wade ætlar að beita sínum áhrifum til að reyna að sannfæra Lamar Odom um að semja við Miami Heat víst að NBA-meistararnir í Los Angeles Lakers eru ekki lengur tilbúnir að bjóða Odom samning. Odom lék við hlið Dwyane Wade fyrir fimm árum þegar Wade var nýliði í deildinni.

Miami Heat er tilbúið að bjóða Lamar Odom fimm ára samning sem ætti að vera virði um 35 milljóna dollara eða rúma 4,4 milljarða íslenskra króna. Odom er orðinn 29 ára gamall og er að hefja sitt ellefta tímabil í NBA-deildinni.

„Ég vil að Lamar geri það sem er best fyrir hann og hans fjölskyldu því hann er eins og einn af fjölskyldunni okkar. Við viljum samt að hann komi aftur heim til okkar. Húsið hans er enn hérna og við bíðum spenntir eftir fréttum af framhaldinu," sagði Wade en Miami skipti Odom ásamt Caron Butler og Brian Grant til Lakers sumarið 2004 og fékk í staðinn Shaquille O'Neal.

Odom átti mjög gott tímabil með Miami 2003-04 en hann skoraði þá 17,1 stig að meðaltali í leik. Það tók Wade og liðið nokkurn tíma að ná takti en liðið vann 17 af síðasta 21 leik sínum í deildinni og náði fjórða sætinu í austurdeildinni.

„Lamor veit alveg hvernig mér líður og hvar ég vil að hann spili. Hann hefur tekið sinn tíma í þessa ákvörðun enda er þetta eina mikilvægasta ákvörðunin í hans lífi. Þetta gæti verið staðurinn þar sem hann klárar sinn feril," sagði Wade og bætir við. „Við höfum alltaf átt gott samband og hann hjálpaði mér mikið sem ungum leikmanni að hefja sinn NBA-feril," sagði Wade.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×