Körfubolti

Thomas í þjálfarastólinn á ný

Isiah Thomas
Isiah Thomas Nordic Photos/Getty Images

Isiah Thomas, fyrrum forseti og þjálfari New York Knicks í NBA deildinni, hefur samþykkt að taka við þjálfarastarfinu hjá Florida International háskólanum næstu fimm árin.

Thomas varð tvívegis NBA meistari með liði Detroit Pistons fyrir tveimur áratugum en hefur aldrei þjálfað í háskólaboltanum áður.

Hann þjálfaði Indiana Pacers í NBA deildinni með ágætum árangri, en ferill hans sem þjálfari og forseti tók mikla dýfu þegar hann fór til New York Knicks á sínum tíma.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×