Sport

Federer slátraði Del Potro

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roger Federer átti ekki í neinum vandræðum með andstæðing sinn í morgun.
Roger Federer átti ekki í neinum vandræðum með andstæðing sinn í morgun. Nordic Photos / AFP

Roger Federer vann sér í dag sæti í undanúrslitum einliðaleiks karla á opna ástralska meistaramótinu í tennis með auðveldum sigri á Juan Martin del Potro frá Argentínu.

Del Potro átti ekki möguleika og tapaði viðureigninni 6-3, 6-0 og 6-0. Federer mætir Andy Roddick í undanúrslitunum en Roddick vann núverandi meistara Novak Djokovic, í nótt.

Djokovic þurfti að draga sig í hlé vegna meiðsla en ljóst er að Roddick á erfitt verkefni fyrir höndum gegn Federer.

Þetta var í nítjánda sinn í röð sem Federer kemst í undanúrslit á stórmóti á tennis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×