Körfubolti

Abdul-Jabbar: Afar þakklátur fyrir allan stuðninginn

Ómar Þorgeirsson skrifar
Kareem Abdul-Jabbar.
Kareem Abdul-Jabbar. Mynd/AP

NBA-goðsögnin Kareem Abdul-Jabbar kveðst alls ekki sjá eftir því að hafa nýlega tilkynnt opinberlega að hann hafi greinst með sjaldgæfa tegund af hvítblæði og væri nú í meðferð út af veikindunum.

Abdul-Jabbar á vart orð til þess að lýsa stuðningnum sem hann hefur fengið að í framhaldinu.

„Ég átti í sannleika sagt ekki von á þeim viðbrögðum sem ég hef fengið. Ég hef verið stoppaður af ókunnugu fólki úti á götu sem hvetur mig áfram í baráttunni og reynir að stappa í mig stálinu og það er bæði fallega gert og gjörsamlega ómetanlegt," er haft eftir Abdul-Jabbar í viðtali við ESPN fréttastofuna.

Abdul-Jabbar er stigahæsti leikmaður í sögu NBA en hann skoraði 38.387 stig á tuttugu ára ferli sínum og vann sex NBA-titla og var sex sinnum valinn besti leikmaður deildarinnar.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×