Körfubolti

Marquis Daniels spilar með Boston næsta vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marquis Daniels lék vel með Indiana Pacers síðasta vetur.
Marquis Daniels lék vel með Indiana Pacers síðasta vetur. Mynd/AFP

Marquis Daniels, fyrrum bakvörður Indiana Pacers og Dallas Mavericks, hefur náð samkomulagi við Boston Celtics um að spila með liðinu á næsta tímabili. Umboðsmaður kappans er búinn að staðfesta þetta í bandarískum fjölmiðlum.

Marquis Daniels er 28 ára og 198 sm skotbakvörður sem getur einnig spilað sem lítill framherji. Hann lék með Dallas Mavericks frá 2003-06 en hefur spilað með Indiana Pacers undanfarin þrjú tímabil.

Marquis Daniels átti sitt besta tímabil á ferlinum síðasta vetur þar sem hann skoraði 13,6 stig og tók 4,6 fráköst að meðaltali í leik með Indiana. Hann hefur skorað 9,4 stig að meðaltali í 351 leik í NBA en þar hefur hann verið í byrjunarliði í 109 leikjanna.

Marquis Daniels var nýliði hjá Dallas Mavericks þegar Jón Arnór Stefánsson kom til liðsins haustið 2003 og spiluðu þeir meðal annars saman í sumardeildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×