Körfubolti

Kidd kastaði upp í miðjum leik

Kidd er hér í baráttu við Tony Parker í umræddum leik
Kidd er hér í baráttu við Tony Parker í umræddum leik AP

Leikstjórnandinn Jason Kidd hjá Dallas Mavericks var fárveikur og ældi í miðjum fyrsta leik liðsins gegn San Antonio í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í fyrrakvöld.

Kidd var með magapest og segir sagan að hann hafi ælt í plastbolla fyrir aftan bekkinn hjá Dallas.

Veikindi leikstjórnandans sterka komu þó ekki að sök í leiknum, því Dallas vann hann og náði að stela sigri á útivelli í fyrsta leik.

Liðin eigast við aftur í kvöld og búist er við því að Kidd muni spila. Hann spilaði 39 mínútur í fyrsta leiknum en skoraði aðeins 4 stig og gaf 5 stoðsendingar.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×