Körfubolti

Cuban vill halda Jason Kidd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jason Kidd.
Jason Kidd.

Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, sendir skilaboð sín til heimsins í gegnum Twitter og nú síðast tilkynnti hann heiminum að hann væri á förum til New York að ræða við Jason Kidd.

Kidd er með lausan samning og Cuban vill ólmur halda honum hjá félaginu. Það gæti þó reynst þrautin þyngri.

New York Knicks er áhugasamt og svo er hermt að Cleveland Cavaliers sé einnig á höttunum eftir leikstjórnandanum sterka. Lakers er jafnvel talið hafa áhuga líka.

Kidd, sem orðinn er 36 ára, þarf því að gera upp við sig hvort hann vilji lengri samning hjá einhverju liði eða jafnvel eins árs samning við lið eins og Lakers eða Cleveland.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×