Körfubolti

Boston-Orlando í beinni á miðnætti

Glen Davis fagnar sigurkörfu sinni í fjórða leiknum gegn Orlando
Glen Davis fagnar sigurkörfu sinni í fjórða leiknum gegn Orlando AP

Fimmti leikur Boston Celtics og Orlando Magic í úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á miðnætti í nótt.

Staðan í einvíginu er jöfn 2-2 og þegar hafa tveir leikir unnist á útivelli í einvíginu. Leikur kvöldsins fer fram í Boston og næsti leikur í Orlando. Ef með þarf verður oddaleikurinn í Boston um helgina.

Boston vann fjórða leikinn í Orlando á dramatískan hátt þar sem Glen Davis tryggði liðinu sigurinn með skoti um leið og leiktíminn rann út.

Kendrick Perkins, miðherji Boston, hefur átt við axlarmeiðsli að stríða, en hann verður með liðinu í kvöld eftir að rannsóknir sýndu að öxlin á honum var í lagi.

Í kvöld mætast líka LA Lakers og Houston Rockets í fimmta leik liðanna. Þar er staðan einnig 2-2 og í kvöld er leikið í Los Angeles.

Á fimmtudagskvöldið klukkan 1:30 eftir miðnættið verður sjötti leikur liðanna í Houston og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×