Körfubolti

Pierce verður með Boston í nótt

NordcPhotos/GettyImages

Annar leikur Boston Celtics og LA Lakers um NBA meistaratitilinn fer fram í Boston klukkan eitt í nótt. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Fyrsti leikurinn var dramatískur og skemmtilegur en honum lauk með sigri heimamanna.

Þar spilaði framherjinn Paul Pierce stóra rullu fyrir heimamenn, en hann átti stóran þátt í sigri liðsins þrátt fyrir að hafa meiðst á hné í síðari hálfleik.

Hann hefur nú fengið grænt ljós á að spila í nótt, rétt eins og miðherjinn Kendrick Perkins hjá Boston sem tognaði á ökkla í fyrsta leiknum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×