Körfubolti

New York - Denver í beinni klukkan 18

Chauncey Billups og Carmelo Anthony
Chauncey Billups og Carmelo Anthony NordicPhotos/GettyImages

Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 18 í kvöld.

Bæði lið hafa komið nokkuð á óvart í vetur, en þó New York (11 sigrar - 17 töp) hafi spilað mun betur en í fyrra þrátt fyrir mannabreytingar og meiðsli - hefur liðið nú tapað fimm leikjum í röð og fengið á sig 115 stig að meðaltali í þessum fimm leikjum.

Denver (19 sigrar - 11 töp) hefur verið án skorarans mikla Carmelo Anthony í þremur síðustu leikjum vegna meiðsla hans á olnboga, en gert er ráð fyrir að hann verði klár í kvöld.

Denver vann tvo af þremur leikjum sínum án Anthony, en það var mikið til að þakka leikstjórnandanum Chauncey Billups sem kom til liðsins í skiptum fyrir Allen Iverson í upphafi tímabils. Billups er frá Denver og hefur leikið við hvern sinn fingur í nýju umhverfi.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×