Körfubolti

Iverson fær háa sekt fyrir að skrópa á æfingu

Allen Iverson þarf að byrja á bekknum annað kvöld eftir að hafa skrópað á æfingu
Allen Iverson þarf að byrja á bekknum annað kvöld eftir að hafa skrópað á æfingu NordicPhotos/GettyImages

Ferill Allen Iverson hjá Detroit Pistons í NBA deildinni hefur ekki byrjað sérlega vel. Kappinn skrópaði á æfingu í dag og verður fyrir vikið gert að greiða háa sekt að sögn þjálfarans Michael Curry.

Hann hefur auk þess verið settur á varamannabekkinn fyrir leikinn gegn Milwaukee Bucks aðra nótt.

Iverson hefur spilað tíu leiki fyrir Detroit síðan hann kom frá Denver í skiptum fyrir Chauncey Billups fyrir skömmu og hefur skorað í þeim 18 stig að meðaltali.

Detroit hefur aðeins unnið helming leikja sinna síðan Iverson kom til liðsins og hefur gengi þess sannarlega verið upp og ofan.

Liðið hefur t.a.m. náð að vinna sigur á bæði LA Lakers og Cleveland sem samanlagt hafa aðeins tapað fjórum leikjum á leiktíðinni.

Þessir sigrar féllu þó væntanlega í skuggann af 26 stiga tapi Detroit á heimavelli fyrir Minnesota Timberwolves í vikunni, en fyrir leikinn hafði Minnesota ekki unnið einn einasta leik á útivelli á leiktíðinni.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×