Körfubolti

Odom og Gasol hafa lítið sofið

Odom og Gasol eru staðráðnir í að gera betur í nótt
Odom og Gasol eru staðráðnir í að gera betur í nótt NordcPhotos/GettyImages

Fjórði leikur San Antonio Spurs og LA Lakers í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt.

Lakers-liðið náði 2-0 forystu í einvíginu í leikjum sem fram fóru í Los Angeles, en fengu 103-84 skell í San Antonio í þriðja leiknum.

Leikmenn Lakers voru flestir fjarri sínu besta í þriðja leiknum og í raun var Kobe Bryant (32 stig) eini maðurinn sem spilaði á pari hjá gestunum.

Lamar Odom og Pau Gasol léku illa og hafa ekki sofið mikið eftir slaka frammistöðu.

"Auðvitað vil ég að menn fái góða hvíld fyrir leikina, en það er eðlilegt að þeir séu ósáttir við sig eftir svona frammistöðu eins og í síðasta leik. Það er áhyggjuefni, " sagði Phil Jackson þjálfari Lakers.

Þeir ætla báðir að gera betur í fjórða leiknum í nótt.

"Ég bara kom boltanum ekki ofan í og gat ekki einu sinni hitt úr vítunum," sagði Lamar Odom, sem fylgdi eftir fínum leik í Los Angeles með því að hitta aðeins úr 2 af 11 skotum utan af velli og 3 af 8 vítum í þriðja leiknum.

Pau Gasol var sömuleiðis ósáttur við sjálfan sig eftir að hitta aðeins úr 7 af 18 skotum sínum. "Ég var dálítið hikandi og ekki nógu grimmur," sagði Gasol.

Kobe Bryant var sjálfum sér líkur í síðasta leik og fjórir þristar frá honum á skömmum tíma í fjórða leikhlutanum minnkuðu muninn niður í 12 stig og settu smá spennu í leik sem virtist tapaður.

Tim Duncan hjá San Antonio, sem skoraði 22 stig og hirti 21 frákast í síðasta leik, segist gera sér grein fyrir að Bryant verði líklega ekki stöðvaður.

"Við verðum að reyna að halda í við Bryant, en hann er einn besti skorarinn í deildinni og getur sprungið út fyrirvaralaust. Við verðum þá að reyna að halda öðrum mönnum í skefjum á meðan. Við gerum okkur grein fyrir því að það verður varnarleikurinn sem gerir gæfumuninn hjá okkur í þessu," sagði Duncan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×