Tónlist

Chinese í nóvember

Axl Rose, söngvari Guns N´Roses, virðist loksins vera orðinn sáttur við hljóminn á Chinese Democracy.
Axl Rose, söngvari Guns N´Roses, virðist loksins vera orðinn sáttur við hljóminn á Chinese Democracy.

Fyrsta plata rokksveitarinnar Guns N"Roses í fimmtán ár, Chinese Democracy, er væntanleg í verslanir 23. nóvember. Nýjasta lag sveitarinnar, Shackler"s Revenge, verður fyrst gefið út á plötu með lögum úr tölvuleiknum Rock Band 2. Einnig hljómar annað lag af plötunni, If the World, í lok kvikmyndarinnar Body of Lies með Leonardo DiCaprio og Russell Crowe í aðalhlutverkum.

Á sama tíma og platan kemur út verður gefin út vínylendurútgáfa af fyrstu plötu Guns N"Roses, Appetite For Destruction, sem kom út 1987. Útgáfu Chinese Democracy hefur ítrekað verið frestað um árin og telja menn að um sé að kenna fullkomnunaráráttu forsprakkans Axl Rose. Síðast átti platan að koma út í mars á síðasta ári en ekkert varð af því.

Framleiðandi drykkjarins Dr. Pepper hét því fyrr á árinu að gefa öllum Bandaríkjamönnum drykk ef platan kæmi út á þessu ári og miðað við nýjustu fregnir þarf hann að standa við orð sín.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.