Körfubolti

Steve Francis til Memphis

Elvar Geir Magnússon skrifar
Steve Francis er farinn frá Houston.
Steve Francis er farinn frá Houston.

Steve Francis hefur skrifað undir samning við Memphis Grizzlies en Francis kemur úr herbúðum Houston. Francis er bakvörður og hefur átt við erfið meiðsli að stríða á ferli sínum síðan hann lék með New York Knicks.

Eftir að hann kom aftur til Houston lék hann tíu leiki áður en þessi meiðsli tóku sig upp aftur.

Þá er það að frétta úr herbúðum Memphis Grizzlies að búið er að rifta samningi við Antoine Walker án þess að hann hafi leikið leik fyrir félagið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×