Körfubolti

Fyrsti þjálfarinn látinn fjúka

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
PJ Carlesimo, fyrrum þjálfari Oklahoma City.
PJ Carlesimo, fyrrum þjálfari Oklahoma City. Nordic Photos / Getty Images

Í dag var fyrsta þjálfarnum í NBA-deildinni sagt upp störfum á tímabilinu. PJ Carlesimo, þjálfari Oklahoma City Thunder, var látinn taka poka sinn eftir skelfilega byrjun liðsins á tímabilinu.

Oklahoma hefur tapað tólf af fyrstu þrettán leikjum sínum á tímabilinu sem er það fyrsta síðan að félagið flutti frá Seattle til Oklahoma City.

Scott Brooks, aðstoðarþjálfari Carlesimo, mun stýra liðinu þar til nýr þjálfari verður ráðinn.

Oklahoma tapaði í gær sínum tíunda leik í röð er liðið tapaði fyrir New Orleans á heimavelli, 105-80.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×