Körfubolti

D´Antoni í viðræðum við New York og Chicago

NordcPhotos/GettyImages

Nú þykir líklegt að Mike D´Antoni þjálfari Phoenix muni hætta hjá félaginu í sumar. Útvarpsstöð í Phoenix greindi frá því í gærkvöld að þjálfarinn hefði fengið leyfi frá stjórn félagsins um að ræða við Chicago og New York, en þessi félög eru bæði þjálfaralaus.

Ekki er langt síðan Steve Kerr forseti Phoenix Suns útilokaði að D´Antoni fengi að ræða við önnur félög á þessu stigi málsins, en heimildir ESPN herma að samstarf D´Antoni við Kerr og eiganda Suns hangi á bláþræði.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×