Tónlist

Semur kraftapopp

Forsprakki Green Day telur að „kraftapopp“ verði allsráðandi á næstu plötu Green Day.
Forsprakki Green Day telur að „kraftapopp“ verði allsráðandi á næstu plötu Green Day.

Billie Joe Armstrong, forsprakki Green Day, segir að „kraftapopp" verði líklega allsráðandi á væntanlegri plötu sveitarinnar. „Mér finnst gaman að leika mér með útsetningar og skoða alltaf möguleikann á að semja „kraftapopp"," sagði Armstrong. „Hvernig tekurðu eitthvað, sem gæti verið eftir The Creation, The Who, Bítlana, Cheap Trick eða The Jam og reynir að víkka út þessa þriggja hljóma hugmynd. Ég er að skoða hvernig maður býr eitthvað til þar sem útsetningarnar eru óútreiknanlegar."

Upptökustjóri plötunnar er Butch Vig sem er líklega þekktastur fyrir Nirvana-plötuna Nevermind. „Hann tekur því ekki sem sjálfsögðum hlut sem við erum með í höndunum. Hann notar alla sína vitneskju til hins ýtrasta," sagði Armstrong.

Rúm fjögur ár eru liðin síðan síðasta plata Green Day, American Idiot, kom út við miklar vinsældir. Á meðal vinsælustu laga sveitarinnar eru Welcome to Paradise, Basket Case, When I Come Around og Good Riddance (Time of Your Life).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.