Körfubolti

Mikilvægur sigur hjá Dallas

Dirk Nowitzki og Jason Kidd fagna sigrinum á Phoenix í nótt
Dirk Nowitzki og Jason Kidd fagna sigrinum á Phoenix í nótt NordcPhotos/GettyImages

Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas vann mjög mikilvægan útisigur á Phoenix 105-98 og styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar.

Dirk Nowitzki skoraði 32 stig og hirti 12 fráköst fyrir Dallas en Amare Stoudemire skoraði 31 stig fyrir Phoenix.

Á sama tíma töpuðu báðir keppinautar Dallas í baráttunni um 7. og 8. sætið í Vesturdeildinni sínum leikjum - Golden State og Denver.

Golden State tapaði á útivelli fyrir New Orleans 108-96. Peja Stojakovic og David West skoruðu 25 stig fyrir New Orleans og Chris Paul náði þrefaldri tvennu með 16 stigum, 13 stoðsendingum og 10 fráköstum. Monta Ellis átti stórleik hjá Golden State með 35 stigum og 10 fráköstum.

Denver mátti þola tap gegn Seattle á útivelli í tvíframlengdum leik 151-147 og kom liðið þar með fram hefndum fyrir risaskellinn sem liðið hlaut í Denver fyrir nokkru. Kevin Durant skoraði 37 stig fyrir Seattle í leiknum en Carmelo Anthony skoraði 38 stig fyrir Denver.

Indiana lagði Milwaukee 105-97 og heldur í veika von um sæti í úrslitakeppninni í Austurdeildinni. Danny Granger skoraði 27 stig fyrir Indiana en Michael Redd 24 fyrir Milwaukee.

Detroit vann auðveldan útisigur á Miami 91-75. Earl Barron skoraði 20 stig fyrir Miami en Rodney Stuckey 19 fyrir Detroit.

San Antonio lagði Portland á útivelli 72-65. Brandon Roy skoraði 18 stig fyrir Portland en Tim Duncan 27 stig fyrir San Antonio.

Memphis lagði Minnesota úti 113-101. Mike Miller skoraði 34 stig og hirti 10 fráköst fyrir Memphis en Ryan Gomes skoraði 19 fyrir Minnesota.

New York vann óvæntan sigur á Orlando 100-90 þar sem New York stöðvaði fimm leikja taphrinu. Hedo Turkoglu skoraði 22 stig fyrir Orlando en Wilson Chandler skoraði 23 stig fyrir New York.

LA Lakers vann fjórða leikinn í röð með því að leggja Sacramento á útivelli 114-92. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers en Kevin Martin skoraði 22 fyrir Sacramento.

Loks vann Houston auðveldan sigur á Clippers á útivelli 105-79. Aaron Brooks skoraði 18 stig fyrir Houston en Josh Powell var með 22 stig og 10 fráköst fyrir heimamenn.

Staðan í Austur- og Vesturdeild

Svona liti úrslitakeppnin út ef hún hæfist í dag

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×