Körfubolti

Barnalán í Boston

Paul Pierce á von á sínu fyrsta barni um helgina
Paul Pierce á von á sínu fyrsta barni um helgina NordcPhotos/GettyImages

Leikmönnum Boston Celtics hefur gengið allt í haginn innan sem utan vallar í vetur. Liðið er með bestan árangur allra liða í NBA deildinni, en þar fyrir utan hafa nokkrir leikmanna liðsins orðið svo heppnir að verða feður á árinu.

Fyrirliðinn Paul Pierce gæti þannig misst af leik við Charlotte annað kvöld því kærastan hans Julie Laundrum er nú við það að eignast fyrsta barn þeirra.

Ef Pierce missir af leiknum annað kvöld, verður það fyrsti leikurinn sem hann missir úr í vetur. Pierce er ekki eini maðurinn í liði Celtics sem er í þessum sporum því James Posey eignaðist dóttur í síðustu viku og þá hafa þeir Rajon Rondo, Brian Scalabrine, Kendrick Perkins og Leon Powe allir eignast börn á árinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×