Sígild og samtímatónlist - Flytjendur 6. mars 2008 18:12 Kammersveitin Ísafold er tilnefnd sem besti flytjandinn.
Ágúst Ólafsson Ágúst Ólafsson kom víða við á árinu 2007. Hann fór með stórt hlutverk í óperunni Flagari í framsókn eftir Stravinsky og fór einnig með hlutverk í óperu Strauss, Ariadne á Naxos og í Óperuperlum, allt sýningum í Íslensku óperunni. Hann kom fram á tvennum tónleikum með barrokksveitinni Camerata Drammatica, fór með hlutverk Jesús í Jóhannesarpassíu Bachs ásamt Kór Áskirkju, kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Völuspá eftir Jón Þórarinsson, hélt ljóðatónleika ásamt Gerrit Schuill í Kirkjuhvoli, kom fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, söng finnska tangótónlist, frumflutti Messutónlist eftir Atla Heimi Sveinsson og söng einsöng í Kindertotenlieder eftir Mahler ásamt Kammersveitinni Ísafold. Frammistaða Ágústs í öllum þessum fjölbreyttu verkefnum hefur verið frábær og sýnir að hann býr yfir mikilli listrænni vídd og aga. Tæknilegt vald hans er afburða gott; túlkun hans hófstillt en innlifuð og mjög sannfærandi, hvort sem er í Stravinsky, Mahler, Bach, Jóni Þórarinssyni eða rómantískum ljóðasöng. Elfa Rún KristinsdóttirElfa Rún Kristinsdóttir kom fram á nokkrum afar eftirminnilegum tónleikum á árinu og sýndi þar mikla dýpt og innlifaða túlkun jafnframt því að hafa einstakt vald á hljóðfærinu sínu. Verkefnaval hennar á Tíbrártónleikum og á tónleikum á Listahátíð í Reykjavík var smekklegt og ferskt og túlkun hennar öll djúp og hófstillt. Elfa Rún setur tónlistina alltaf í öndvegi, býr yfir miklum blæbrigðum og lit í túlkun sinni og hefur mikla og persónulega útgeislun. Eftirminnilegir eru tónleikar hennar í turni Hallgrímskirkju þar sem hún flutti d-moll partítu J.S. Bachs, túlkun hennar á tveimur einleikskonsertum eftir Bach ásamt Kammersveit Reykjavíkur og tónleikar í Skálholtskirkju ásamt Kammersveitinni Ísafold en þar var tónlist 20. aldarinnar í öndvegi. Elfa Rún hefur mikla breidd, henni lætur vel að túlka tónlist ólíkra tónlistarskeiða allt frá barrokki til 21. aldarinnar. Kammersveitin ÍsafoldKammersveitin Ísafold hefur frá upphafi sýnt dirfsku og mikinn listrænan metnað, sinnt íslenskri nýsköpun jafnframt því að flytja fjölmörg lykilverk erlendra tónskálda frá 20. öld en mörg erlendu verkanna sem Ísafold hefur flutt hafa ekki hljómað hér á landi fyrr. Sú listræna stefna verið afar mikilvæg fyrir íslenskt tónlistarlíf og veitt ferskum straumum inn í það. Sveitin er skipuð frábærum hljóðfæraleikurum og tónleikar hennar eru ávallt sérlega vandaðir og heilsteyptir, túlkunin sannfærandi og tekur mið af hverju verkefni fyrir sig. Árið 2007 hélt sveitin tvenna öðruvísi Vínartónleika í Íslensku óperunni, kom fram á tónleikum í Langholtskirkju og hélt tvenna tónleika í Skálholtskirkju auk þess sem hún gaf út sína fyrst plötu. Hún frumflutti verk eftir Daníel Bjarnason og lék verk eftir tónskáldin Arvo Pärt, Salvatore Sciarrino, Iannis Xenakis, Alfred Schnittke, Morton Feldman, Wolfgang Rihm, Pierre Boulez, Alexander Goehr, Sir Harrison Birtwistle, Edison Denisov, Dmitri Smirnoff, Igor Stravinsky, Gustaf Mahler.
Íslensku tónlistarverðlaunin Mest lesið Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Menning Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Lífið Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“ Lífið Útilokar ekki að bjóða sig aftur fram Lífið „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Lífið Kenningar á kreik eftir ásakanir um kynferðisbrot Al-Fayed Lífið Stórborgar fílingur í sögufrægu húsi Jóns Davíðs og Birgittu Lífið Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Lífið Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Lífið samstarf Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar Lífið Fleiri fréttir Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Sjá meira