Körfubolti

Meiðsli Bryant ekki alvarleg

Kobe Bryant
Kobe Bryant NordicPhotos/GettyImages

Kobe Bryant gat dregið andann léttar í dag þegar í ljós kom að hnémeiðslin sem hann varð fyrir í leik gegn Charlotte í gærkvöld eru minniháttar.

"Ég er góður, betri í dag og sannarlega í betra skapi," sagði Bryant þeagr hann var spurður út í meiðslin.

"Hnéð bólgnaði ekki upp og því létti mér mikið. Ég svaf reyndar ekki mikið og sá meistarahringinn flökta fyrir augunum þegar ég meiddi mig. Þetta var verst í þessar 10 mínútur eftir að þetta gerðist," sagði Bryant.

Þetta eru góð tíðindi fyrir Lakers og Bryant og bjartsýnustu spár segja að hann muni jafnvel verða klár í slaginn í næsta leik með liði sínu.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×