NBA: Sigrar hjá Boston og Lakers Elvar Geir Magnússon skrifar 21. nóvember 2008 09:00 Rajon Rondo gefur boltann í nótt.
Tveir leikir voru í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Meistararnir í Boston Celtics unnu sannfærandi sigur á Detroit Pistons 98-80 og þá hélt Los Angeles Lakers sigurgöngu sinni áfram með 105-92 útisigri gegn Phoenix Suns. Detroit hefur verið að ná góðum úrslitum að undanförnu en liðið átti í erfiðleikum með Boston. Jafnt var eftir fyrsta fjórðung en Boston vann næstu tvo af miklu öryggi og tryggði sér þar sigurinn. Allen Iverson var stigahæstur hjá Detroit með 16 stig en hjá Boston skoraði Rajon Rondo 18 stig og var með 8 stoðsendingar. Kevin Garnett skoraði 15 stig. Lakers heldur áfram að gera magnaða hluti á útivelli. Kobe Bryant var stigahæstur með 24 stig en var talsvert frá sínu besta. Samherjar hans stigu þá upp og stöðugleikinn var lykillinn að sigri Lakers. Liðið vann fyrstu þrjá fjórðungana en jafnt var í þeim síðasta. Vladimir Radmanovic var með 15 stig fyrir Lakers. Amare Stoudemire var stigahæstur hjá Phoenix með 21 stig, Shaquille O´Neal var með 15 stig og 9 fráköst.
NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira