Tónlist

Múlinn í kvöld á Rósenberg

Haukur Gröndal klarinettuleikari
Haukur Gröndal klarinettuleikari

Í kvöld koma Sextett Hauks Gröndal og Jónsson & More-tríóið fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans. Múlinn hefur flutt sig um set og fara tónleikarnir nú fram á Café Rósenberg við Klapparstíg 25 og hefjast þeir kl. 21.

Sextett Hauks Gröndal er tiltölulega nýr af nálinni og tróð upp á Jazzhátíð Reykjavíkur í lok ágúst við mjög góðar undirtektir. Efnisskrá sveitarinnar er samansett af perlum jazzbókmenntanna með sérstaka skírskotun í hljóm K.K. sextettsins en sú hljómsveit var ein vinsælasta danshljómsveit landsins um árabil.

Með Hauki Gröndal sem leikur á saxófón leika Reynir Sigurðsson, en hann er einn af okkar helstu víbrafónleikurum og heldur upp á 50 ára starfsafmæli í ár; Ásgeir Ásgeirsson leikur á gítar, Agnar M. Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á trommur.

Í seinni hlutanum kemur fram Jónsson & More sem er nýstofnað tríó skipað þeim Ólafi Jónssyni saxófónleikara, Þorgrími Jónssyni bassaleikara og Scott McLemore trommuleikara. Efnisskrá tríósins er úr smiðju Thelonious Monk og Charlie Mingus sem og frumflutningur á nýju efni Þorgríms Jónssonar.

Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta jazzgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og Menningarsjóði FÍH.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.