Körfubolti

Curry tekur við Detroit

Elvar Geir Magnússon skrifar
Curry á blaðamannafundi í dag.
Curry á blaðamannafundi í dag.

Michael Curry er tekinn við sem aðalþjálfari Detroit Pistons í NBA-deildinni. Hann tekur við af Flip Saunders sem rekinn var eftir að Detroit beið lægri hlut fyrir Boston í úrslitakeppninni.

Curry var aðstoðarþjálfari Saunders en hann á að baki góðan feril sem leikmaður og þjálfari. Sem leikmaður lék hann meðal annars með Detroit og var þekktur fyrir drifkraft sinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×