Körfubolti

NBA í nótt: Enn sigrar Lakers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lamar Odom sækir að körfunni.
Lamar Odom sækir að körfunni. Nordic Photos / Getty Images

LA Lakers vann í nótt sigur á Minnesota, 98-86, þó svo að fyrrnefnda liðið hafi oft spilað betur. Fjórir leikir fjóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Lakers hefur alls unnið 20 leiki í haust og tapað aðeins þremur en engu að síður hefur liðið oft spilað betur en að undanförnu. Lakers hefur mætt liðum með neikvætt sigurhlutfall í sjö af síðustu átta leikjum og tapað tveimur þeirra - fyrir Indiana og Sacramento.

„Við náðum að halda andstæðingnum undir 100 stigum og vorum aðeins með tíu tapaða bolta," sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers, eftir leikinn og reyndi að horfa á björtu hliðarnar.

Spurður hvort það gæti verið að Lakers sé að fara niður á plan andstæðingsins sagði hann að það gæti verið. „Sóknarleikurinn var ekki upp á sitt besta hjá okkur. Það er eins og að hraðinn sé ekki að nýtast okkur og við erum ekki ná að klára sóknirnar almennilega."

Munurinn í leiknum var sex stig, 76-70, þegar fjórði leikhluti var hálfnaður. Kobe Bryant tók þá til sinna mála og jók forystuna í tólf stig. Þar með var sigurinn tryggður.

Bryant skoraði 26 stig og Pau Gasol átján. Hjá Minnesota var Al Jefferson stigahæstur með 20 stig og Craig Smith kom næstur með átján.

New Orleans vann Toronto, 99-91. David West skoraði 29 stig og James Posey 20 fyrir Nre Orleans. Chris Bosh skoraði 25 fyrir Toronto og Jose Calderon 22.

Memphis vann Miami, 102-86, þar sem OJ Mayo skoraði 28 stig fyrir Memphis og Rudy Gay átján. Michael Beasley skoraði 20 stig fyrir Miami.

San Anotnio vann Oklahoma, 109-104. Tony Paker skoraði 22 stig og Tim Duncan 20 fyrir San Antonio en Jeff Green 33 fyrir Oklahoma og Kevin Durant 28.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×