Körfubolti

Billups mun ekki ná sér í úrslitakeppninni

Chauncey Billups er Detroit liðinu afar mikilvægur
Chauncey Billups er Detroit liðinu afar mikilvægur NordcPhotos/GettyImages

Leikstjórnandinn Chauncey Billups hjá Detroit Pistons segist ekki eiga von á því að ná sér að fullu af meiðslum sínum á meðan úrslitakeppnin stendur yfir.

Billups meiddist aftan í læri í einvíginu við Orlando í annari umferðinni og missti af tveimur leikjum.

Meiðsli hans tóku sig upp að nýju skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins gegn Boston í fyrrakvöld og er Billups ansi aumur í lærinu núna að sögn þjálfarans Flip Saunders.

"Hann er dálítið aumur í dag, en það verður allt í lagi með hann," sagði Saunders þjálfari. Billups tók þátt í æfingu liðsins í gær.

Billups skoraði 19 stig og gaf 7 stoðsendingar í öðrum leiknum þegar Detroit varð fyrsta liðið til að vinna Celtics í Boston í úrslitakeppninni. Staðan í einvíginu er jöfn 1-1.

Þriðji leikur liðanna fer fram klukkan hálfeitt í nótt í Detroit og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×