Körfubolti

Pétur tekur við Grindavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiffany Roberson, leikmaður Grindavíkur.
Tiffany Roberson, leikmaður Grindavíkur. Mynd/Vilhelm

Pétur Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta og tekur hann við starfinu af Igor Beljanski.

Pétur hefur verið aðstoðarmaður Friðriks Ragnarssonar, þjálfara karlaliðs Grindavíkur, undanfarin tvö ár.

Á heimasíðu Grindavíkur kemur fram að hann vilji halda Tiffany Roberson hjá liðinu en hann vill aðeins hafa einn útlending hjá liðinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×