Tónlist

Segjast vera finnskir

Ætla að segjast finnskir Noise blanda saman poppi og metal á næstu plötu.
Ætla að segjast finnskir Noise blanda saman poppi og metal á næstu plötu.

Rokkhljómsveitin Noise ætlar að stinga hausnum í kjaft breska ljónsins og spila þar á fimm tónleikum. Túrinn hefst í kvöld í Donchester. „Við erum nú bara að pæla í að kynna okkur sem band frá Finnlandi," segir Stefán Vilberg, bassaleikari Noise. „Þetta eru víst svaðalegar skítabúllur, til dæmis sú í Grimsby. Maður tekur engar óþarfa áhættur."

Hljómsveitin spilaði blöndu gruggs og sígilds rokks á fyrstu plötu sinni sem kom út árið 2006. Sveitin er nú langt komin með nýja plötu og ætlar að gefa hana út á næsta ári. „Þar verður nútímalegra rokk myndi ég segja," segir Stefán, „eins konar bland af metal og poppi."

Stefán á ekki von á miklu lúxuslífi á túrnum. „Það er spurning hvernig gengur að redda sér gjaldeyri, en það verður eldað fyrir okkur á öllum stöðunum sem við spilum á. Súpa eða eitthvað. Við ættum alla vega ekki að svelta."- drg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.