Tónlist

Poetrix predikar úti á landi

Poetrix uppfræðir krakka í Sandgerði.
Poetrix uppfræðir krakka í Sandgerði.

„Ég er bara að rúnta um landið, rappa fyrir krakkana og borða núðlur. Fokk kreppa!" segir rapparinn Poetrix - Sævar Daniel Kolandavelu - sem er búinn að vera eina viku á vegum úti og á tvær vikur eftir enn. Hann og dj-inn og bítboxarinn Siggi Bahamas, eða NENNIsiggi, gera nú víðreist og troða upp á 32 stöðum á landsbyggðinni. Þar skemmta þeir og reyna að hafa jákvæð áhrif á krakkana.

„Skilaboðin sem beinast að unglingum úr öllum áttum skemmtanaiðnaðarins í dag orka vægast sagt tvímælis," segir Poetrix. „Staðlaðar ímyndir um útlit og holdafar sjást í hverju einasta tónlistarmyndbandi, dópneysla er máluð upp sem sjálfsagður hlutur af lífsstíl þeirra sem slá í gegn og jafnvel sem spennandi þáttur í karaktersköpun."

Poetrix, sem sjálfur er fyrrverandi fíkill, hefur ekki trú á predikun eða hræðsluáróðri. „Mér finnst líklegra til árangurs að nálgast krakkanna á jafningjagrundvelli og setja fyrirmynd með fordæmi. Með því að segja þeim aðeins frá sjálfum mér og leyfa þeim að fá smá innsýn í það sem að ég er að gera í dag og viðhorf til þess að vera ungur maður í þjóðfélaginu, er ég viss um að ná að skilja eitthvað jákvætt eftir mig."

Krakkarnir hafa hingað til tekið vel í heimsóknina og Poetrix er bjartsýnn á æsku landsins. „Maður sér fullt af hæfileikaríkum krökkum. Það eiga sér drauma og markmið en þau verða auðvitað að hafa grundvöll til að láta drauma sína rætast. Krakkar á Íslandi eru gífurlega „fresh", eins og Siggi myndi orða það."

Poetrix og Siggi eru á Norðurlandi þessa dagana og munu standa fyrir ýmsum uppákomum á Akureyri um helgina ásamt rappbandinu 32C.-drg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.