Körfubolti

Skipta Brand og Davis um heimilisfang?

Baron Davis ætlar að leika með Clippers í heimaborg sinni
Baron Davis ætlar að leika með Clippers í heimaborg sinni NordcPhotos/GettyImages

Framherjinn Elton Brand hjá LA Clippers í NBA deildinni er nú að íhuga ríkulegt samningstilboð sem Golden State Warriors hefur boðið honum.

Clippers-liðið styrkti sig til muna á dögunum þegar það náði samkomulagi við leikstjórnandann Baron Davis sem leikið hefur með Warriors síðustu ár.

Davis skoraði tæp 22 stig og gaf 7,6 stoðsendingar að meðaltali í leik með Warriors á síðustu leiktíð og spilaði alla 82 leikina.

Brand er með lausa samninga hjá Clippers og fastlega er reiknað með að hann framlengi við lið Clippers eftir að Davis samþykkti að skrifa undir samning hjá félaginu.

Samningurinn sem Golden State ku vera með á borðinu er hinsvegar talsvert stærri en sá sem Clippers getur boðið og því þarf Brand að liggja undir feldi næstu daga.

Félögin í NBA deildinni mega semja formlega við leikmenn þann 9. júlí nk og búast má við að Brand verði búinn að ákveða sig fyrir þann tíma.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×