Tónlist

Bergmann - Bergmann: Tvær stjörnur

Bergmann - Bergmann
Bergmann - Bergmann

Bergmann er fyrsta sólóplata Sverris Bergmann, en hann hefur lengi þótt efnilegur söngvari og var m.a. meðlimur í hljómsveitinni Daysleeper. Það var mikið lagt í þessa plötu. Hún var þrjú ár í vinnslu og var tekin upp í London undir stjórn James Hallawell sem m.a. hefur unnið með Wet Wet Wet.

Tónlistin á Bergmann er mikið unnið popp. Lögin eru mishröð, allt frá ballöðum upp í rokk, stemningin minnir stundum á Coldplay. Það heyrist strax við fyrstu hlustun að platan er faglega unnin. Hljómurinn er tær og nútímalegur og platan er mjög vel hljóðblönduð. Hljóðfæraleikurinn er líka til fyrirmyndar og söngur Sverris kemur oft ágætlega út. Það eru hins vegar tvö stór vandamál við plötuna. Útsetningarnar eru ófrumlegar og iðnaðarlegar og það sem verra er, lagasmíðarnar eru flestar mjög veikar.

Og án góðra lagasmíða á poppplata eins og þessi ekki mikla möguleika. Fagleg vinnubrögð gagnast lítið ef efniviðurinn er ekki til staðar.

Trausti Júlíusson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.