Körfubolti

Lakers-Spurs í beinni í nótt

Kobe Bryant stígur á stóra sviðið á Stöð 2 Sport í nótt
Kobe Bryant stígur á stóra sviðið á Stöð 2 Sport í nótt NordcPhotos/GettyImages

Annar leikur LA Lakers og San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA fer fram klukkan eitt í nótt og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Lakers vann fyrsta leikinn á heimavelli sínum naumlega eftir að hafa lent mest 20 stigum undir þegar nokkuð var liðið á síðari hálfleikinn. Þá tók stórstjarnan Kobe Bryant hinsvegar við sér og leiddi lið sitt til sigurs.

Annar leikur liðanna fer einnig fram í Los Angeles og leikir tvö og þrjú verða í San Antonio.

Stöð 2 Sport mun gera úrslitakeppninni í NBA góð skil á næstunni og verða beinar útsendingar á hverju kvöldi fram yfir helgina.

Áhugasamir geta fylgst með gangi mála og tekið þátt í umræðum um úrslitakeppnina á NBA Blogginu á Vísi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×