Körfubolti

NBA: San Antonio vann Phoenix

Elvar Geir Magnússon skrifar
Dwight Howard, leikmaður Orlando, með tilþrif.
Dwight Howard, leikmaður Orlando, með tilþrif.

Tveimur leikjum í NBA-deildinni í kvöld er lokið. Orlando Magic vann New Orleans Hornets auðveldlega 88-68. Það var meiri spenna þegar San Antonio Spurs vann útisigur á Phoenix Suns 91-90.

Orlando gerði út um leikinn gegn New Orleans í fyrri hálfleik en staðan var 61-31 þegar gengið var til búningsklefa.

Hedo Turkoglu var stigahæstur hjá Orlando með 20 stig og Rashard Lewis var með 18. David West var stigahæstur New Orleans með 13 stig.

San Antonio tryggði sér sigurinn með þriggja stiga körfu undir lokin þegar liðið vann Phoenix.

Tony Parker var stigahæstur í liði San Antonio með 27 stig og þá skoraði Tim Duncan 25 stig. Amare Stoudemire var með 25 stig fyrir Phoenix og Shaquille O´Neal 23.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×