Körfubolti

NBA: Cleveland minnkaði muninn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Delonte West og Wally Szczerbiak í leiknum í gær.
Delonte West og Wally Szczerbiak í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Cleveland vann Boston og Detroit vann nauman sigur á Orlando.

Um er að ræða báðar undanúrslitaviðureignirnar í Austurdeildinni. Detroit er komið í 3-1 forystu gegn Orlando en Cleveland minnkaði muninn í 2-1 eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum.

Cleveland vann Boston, 108-84, þó svo að enn eina ferðina hafi LeBron James hafi ekki náð sér á strik í skotnýtingunni. Hann skoraði 21 stig í leiknum, rétt eins og Delonte West. James hitti úr fimm skotum af sextán utan af velli en West úr sjö af ellefu.

Joe Smith var með sautján stig fyrir Cleveland sem náði snemma forystunni í leiknum og lét hana aldrei af hendi.

Boston hefur enn ekki unnið á útivelli í úrslitakeppninni en liðið náði engu að síður besta árangri allra liða á útivelli í deildakeppninni. Næsti leikur fer fram annað kvöld í Cleveland.

Kevin Garnett var með sautján stig, Paul Pierce fjórtán og Ray Allen tíu fyrir Boston.

Detroit vann Orlando, 90-89. Hedo Turkoglu hefði getað tryggt Orlando sigurinn en hann misnotaði sniðskot þegar tíminn var að renna út.

Tayshuan Prince skoraði hins vegar sigurkörfu Detroit þegar 8,9 sekúndur voru til leiksloka.

Orlando missti niður fimmtán stiga forskot í þriðja leikhluta og varð Detroit fyrsta liðið í annari umferð úrslitakeppninnar til að vinna leik á útivelli.

Chauncey Billups lék ekki með Detroit í kvöld eftir að hann meiddist í síðasta leik. Það kom ekki að sök í gær.

Tayshaun Prince skoraði sautján stig fyrir Detroit, Rasheed Wallace sextán og Antonio McDyess var með átta stig og fjórtán fráköst.

Turkoglu skoraði 20 stig fyrir Orlando en þeir Rashard Lewis, Maurice Evans og Jameer Nelson voru með fimmtán stig hver.

Detroit getur nú tryggt sér sigur í rimmunni og þar með sæti í úrslitum Austurdeildarinnar með sigri í fimmta leik liðanna á þriðjudagskvöldið.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×