Körfubolti

Meistararnir geta dottið niður í sjötta sætið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tim Duncan og félagar í San Antonio eiga spennandi úrslitakeppni í vændum.
Tim Duncan og félagar í San Antonio eiga spennandi úrslitakeppni í vændum. Nordic Photos / Getty Images

Lokakeppnisdagur tímabilsins í NBA-deildinni fyrir úrslitakeppnina fer fram í nótt. Enn ríkir gríðarlega mikil spenna í Vesturdeildinni ef frá eru talin tvö efstu sætin sem LA Lakers og New Orleans hafa þegar tryggt sér.

Lakers tryggði sér efsta sætið í Vesturdeildinni í nótt með sigri á Sacramento í nótt en það er eitt fárra liða sem spilar ekki nú í kvöld. Alls fara fjórtán leikir fram í nótt.

Annað hvort Denver eða Dallas lenda í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. Lakers mætir liðinu sem verður í áttunda sæti sem er Denver eins og staðan er nú.

Denver þarf því að vinna Memphis á heimavelli í nótt og stóla á að Dallas tapi fyrir New Orleans á heimavelli í kvöld - ef leikmenn Denver vilja sleppa við Lakers.

En þar sem New Orleans hefur efni á því að tapa í nótt er ekki ólíklegt að sterkustu leikmenn liðsins fái að hvíla sig gegn Dallas í kvöld.

Það ríkir mesta spennan um 3.-6. sætið í Vestrinu. Þar er staðan svo jöfn að það er allt eins líklegt að öll fjögur liðin - San Antonio, Utah, Houston og Phoenix, verði með sama árangurinn - 55 sigra og 27 töp.

Þá mun niðurröðun ráðast af árangri í innbyrðisviðureignum. Utah er hins vegar undanskilið því þar sem liðið er öruggt með efsta sætið í sínum riðli.

San Antonio er ríkjandi NBA-meistari og mætir einmitt Utah í lokaumferðinni í kvöld. Sem stendur er San Antonio í þriðja sæti en ef liðið tapar í kvöld og Houston og Phoenix vinna sína leiki (sem er alls ekki ólíklegt) verða það hlutskipti San Antonio að lenda í sjötta sæti Vesturdeildarinnar.

Hér má sjá á vefútgáfu The Salt Lake Tribune hvaða mótherja Utah gæti hugsanlega fengið í úrslitakeppninni miðað við öll möguleg úrslit í kvöld.

Það eina sem er öruggt í þessu er að Utah verður aldrei neðar en í fjórða sæti og er því öruggt með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Það er dýrmætt því Utah er með besta árangur allra liða í NBA-deildarinnar á heimavelli í vetur.

Það er því einnig ljóst að aðeins eitt hinna liðanna þriggja - San Antonio, Phoenix og Houston - verður með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Leikir kvöldsins hafa hins vegar litla þýðingu fyrir Austurdeildina þar sem það er ljóst hvaða lið mætast þar í fyrstu umferð úrslitakeppninnar:

Boston Celtics - Atlanta Hawks

Detroit Pistons - Philadelphia 76ers

Orlando Magic - Toronto Raptors

Cleveland Cavaliers - Washington Wizards

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×