NBA í nótt: Loksins vann Dallas Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. nóvember 2008 09:28 Dirk Nowitzky fór mikinn gegn New York í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Dallas batt enda á fimm leikja taphrinu er liðið vann sigur á New York í nótt, 124-114, í framlengdum leik þar sem Dirk Nowitzky skoraði 39 stig fyrir Dallas. Þar af sjö í framlengingunni. Josh Howard átti einnig afar góðan leik fyrir Dallas og skoraði 31 stig auk þess sem hann tók fjórtán fráköst. Dallas hefur byrjað afar illa á tímabilinu og er þetta versta byrjun liðsins í áratug. New York hafði yfirhöndina lengst af í leiknum en Dallas náði að jafna metin undir lokin. Zach Randolph skoraði 27 stig fyrir New York og tók átján fráköst. Orlando vann Charlotte, 90-85. Hedo Turkoglu skoraði 20 stig fyrir Orlando og Mickael Pietrus átján. Toronto vann Miami, 107-96. Chris Bosh skoraði 27 stig fyrir Toronto og Jermaine O'Neal ellefu auk þess sem hann tók átján fráköst. Dwyane Wade skoraði 29 stig fyrir Miami. Phoenix vann Detroit, 104-86. Amare Stoudemire var með 29 stig og ellefu fráköst en hann hélt upp á 26 ára afmælið sitt í gær. Shaquille O'Neal fékk reyndar að fjúka út af strax í öðrum leikhluta eftir að hann braut illa á Rodney Stuckey, leikmanni Detroit. Denver vann Minnesota, 90-84, þar sem Chauncey Billups skoraði 26 stig fyrir Denver en Minnesota tapaði þar með sínum áttunda leik í röð. San Antonio vann Sacramento, 90-88. Michael Finley skoraði 21 stig og Tim Duncan 20 fyrir San Antonio. Duncan skoraði tvær lykilkörfur á síðustu mínútu leiksins sem tryggði San Antonio sigurinn í leiknum.
NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira