Körfubolti

NBA: Mikil barátta um 8. sætið í Vesturdeildinni

Stephen Jackson og félagar í Golden State hafa ekki sagt sitt síðasta í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni
Stephen Jackson og félagar í Golden State hafa ekki sagt sitt síðasta í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni NordcPhotos/GettyImages

Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Denver og Golden State há mikla baráttu um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar þar sem þau eru nú hnífjöfn í áttunda og níunda sæti.

Denver steinlá í Utah í nótt 124-97 þrátt fyrir 28 stig frá Allen Iverson, en þrír leikmenn Utah skoruðu 20 stig í leiknum. Utah hefur aðeins tapað fjórum leikjum á heimavelli í allan vetur.

Á sama tíma vann Golden State 122-116 sigur á LA Clippers og því eru liðin jöfn - hafa bæði unnið 48 leiki og tapað 32. Verði þau jöfn fer Denver í úrslitakeppnina vegna betri árangurs í innbyrðisviðureignum. Bæði lið eiga aðeins tvo leiki eftir í deildarkeppninni. Stephen Jackson skoraði 28 stig fyrir Golden State í nótt en Cuttino Mobley skoraði 30 stig og hirti 10 fráköst fyrir Clippers.

Í baráttunni um áttunda sætið í Austurdeildinni gerðist það að bæði Atlanta og Indiana töpuðu en Atlanta er í 8. sætinu sem stendur og vantar nú aðeins einn sigur til að tryggja sér lokasætið í úrslitakeppninni.

Atlanta tapaði fyrir Boston 99-89. Kevin Garnett skoraði 24 stig fyrir Boston en Joe Johnson 21 fyrir Atlanta.

Á sama tíma tapaði Indiana fyrir Charlotte á heimavelli 107-103 og á því aðeins veika von um að komast í úrslitakeppnina.

Washington styrkti stöðu sína með 109-93 sigri á Philadelphia. Antawn Jamison skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst fyrir Washington en Andre Iguodala skoraði 22 fyrir Philadelphia.

New Orleans tapaði öðrum leik sínum í röð þegar það lá í Sacramento 94-91 og hefur því glutrað niður forskoti sínu á toppi Vesturdeildarinnar. Ron Artest skoraði 22 stig fyrir Sacramento en David West var með 30 stig og 15 fráköst hjá New Orleans.

Dallas tapaði í Portland 108-105, Minnesota lagði Memphis 114-105 og New Jersey vann Milwaukee úti 111-98.

Staðan í Austur- og Vesturdeild

Svona liti úrslitakeppnin út ef hún byrjaði í dag

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×