Tónlist

Samdi lag fyrir Obama

Will.i.am (annar frá vinstri) gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
Will.i.am (annar frá vinstri) gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Black Eyed Peas.

Tónlistarmaðurinn Will.i.am hefur gefið út nýtt lag og myndband til að fagna kjöri Baracks Obama sem forseta Bandaríkjanna. Lagið nefnist It"s A New Day og eyddi Will kosninganóttinni í að ljúka við lagið.

Annað lag Will.i.am, Yes We Can, naut mikilla vinsælda fyrr árinu en það var gefið út til stuðnings forsetaframboði Obama. Ein af kosningaræðum Obama var spiluð í laginu og á meðal gestasöngvara voru leikkonan Scarlett Johansson, Nicole Sherzinger úr Pussycat Dolls og djassarinn Herbie Hancock.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.