Körfubolti

Fyrsta tap Boston á heimavelli í úrslitakeppninni

Detroit kom sér í vænlega stöðu með sigri í Boston í nótt
Detroit kom sér í vænlega stöðu með sigri í Boston í nótt NordcPhotos/GettyImages

Boston Celtics tapaði í nótt fyrsta leik sínum á heimavelli í úrslitalkeppni NBA þegar liðið lá 103-97 fyrir Detroit í öðrum leik liðanna í úrslitum Austurdeildar.

Boston hafði tveggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, en Detroit var skrefinu á undan eftir það. Liðið spilaði mun betur en í fyrsta leiknum og fékk gott og jafnt framlag frá helstu stjörnum sínum að þessu sinni.

Staðan í einvíginu er því orðin 1-1 og næstu tveir leikir fara fram í Detroit.

Kevin Garnett var á ný góður í liði Boston með 24 stig og 13 fráköst, Paul Pierce skoraði 26 stig og Ray Allen fann sig á ný með 25 stigum og átti sinn besta leik í margar vikur. Hann lenti hinsvegar í villuvandræðum í leiknum.

Rip Hamilton fór fyrir liði Detroit með 25 stigum í leik þar sem hann komst í annað sæti yfir leikjahæstu leikmenn Detroit í úrslitakeppni. Chauncey Billups fann sig vel á ný eftir meiðsli og skoraði 19 stig og gaf 7 stoðsendingar og þeir Antonio McDyess og Tayshaun Prince bættu við 15 og 14 stigum. Þá átti hinn ungi Rodney Stuckey góða innkomu af bekknum með 13 stig.

Tölfræði leiksins

Boston hafði unnið fyrstu níu leiki sína á heimavelli í úrslitakeppninni, en nú horfir liðið fram á að þurfa að vinna í Detroit til að komast í lokaúrslitin. Doc Rivers þjálfari er ekki hissa á því.

"Við vissum að við myndum þurfa að vinna á útivelli fyrr eða síðar í þessari keppni, en við höfum komist upp með að sleppa því til þessa. Nú er hinsvegar búið að taka af okkur heimavöllinn og ef við ætlum okkur að verða meistarar - verðum við nú að vinna á útivelli," sagði Doc Rivers þjálfari Boston.

Í nótt er á dagskrá annar leikur LA Lakers og San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildar þar sem Lakers hefur yfir 1-0.

Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

NBA Bloggið á Vísi

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×