Tónlist

Amiina með nýtt lag

Hljómsveitin Amiina hefur tekið upp sína útgáfu af lagi Lee Hazlewood, Leather and Lace.
Hljómsveitin Amiina hefur tekið upp sína útgáfu af lagi Lee Hazlewood, Leather and Lace.

Hljómsveitin Amiina hefur tekið upp eigin útgáfu af lagi bandaríska sveitasöngvarans Lee Hazlewood, Leather and Lace. Síðasta lagið sem Hazlewood tók upp áður en hann lést í fyrra var einmitt Hilli (At the Top of the World) með Amiinu.

Nýja lagið má heyra á myspace-síðu Amiinu auk þess sem það verður gefið út á næstunni. Amiina er nýkomin heim eftir að hafa hitað upp fyrir Sigur Rós á tónleikaferð um Evrópu, Mexíkó og Bandaríkin. Hljómsveitin Parachutes hitar nú upp í hennar stað þangað til For a Minor Reflection tekur við kyndlinum í nóvember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.