Tónlist

Rokkblanda á Organ í kvöld

DLX ATX skapa sér nafn.
DLX ATX skapa sér nafn. Mynd/Greg

DLX ATX (Deluxe Attacks), Æla og Swords of Chaos spila á Organ í kvöld.

DLX ATX hafa vakið athygli nýverið en bandið er tvíeyki skipað bassaleikara sem syngur, hinum írska Greg Barrett, og trommuleikara, Pétri Má Guðmundssyni, sem leikur einnig með Bacon og Skátum. Ælu þarf vart að kynna fyrir pönkurum landsins og Swords of Chaos ekki fyrir harðkjarnanum.

Á tónleikunum má því finna góða blöndu af rokki. Greg segir böndin eiga það sameiginlegt að „hafa áhuga á hvað geti komið úr hefðbundnum hljóðfærum með nýrri nálgun". Hann bætir við að allir sem ekki fengu miða á Damien Rice geti séð annan Íra skammt frá. „Og kannski verðum við báðir að syngja fyrir bjór á Celtic Cross eftir tónleikana."

Húsið opnar klukkan níu og kostar 1000 krónur inn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.