Tónlist

Skítatúr Spocks í spinningsal

Dr. Spock passaði furðu vel við sveitt fólk á spinninghjólum.
Dr. Spock passaði furðu vel við sveitt fólk á spinninghjólum. Fréttablaðið/Anton

Hljómsveitin Dr. Spock var á framandlegum slóðum í hádeginu í gær þegar hún hélt útgáfutónleikana sína í spinningsal Sporthússins í Kópavogi. Múgur og margmenni svitnuðu við grjóthart rokkið með gula hanska á höndunum. Voru gestir ekki bara aumir í afturendanum eins og vanalega eftir spinningtíma heldur flestir með hvínandi són í eyrunum líka.

„Þetta var frábærlega skemmtilegt," sagði Óttarr Proppé, sem útilokar ekki frekari spilamennsku fyrir líkamsræktarfólk.

Verið var að kynna aðra breiðskífu Spocksins í fullri lengd, Falcon Christ. Fyrsta upplag plötunnar inniheldur auka DVD-disk með tónleikum Dr. Spock á Nasa á Iceland Airwaves í fyrra. Þetta voru fyrstu tónleikarnir í svokölluðum Skítatúr sem hljómsveitin fer með sveitunum Agent Fresco og Slugs. Báðar þessar sveitir gefa nú út sínar fyrstu plötur.

Í kvöld spila sveitirnar á Laugarvatni. Á föstudagskvöldið verða þær á Paddy's í Keflavík og á laugardagskvöldið í félagsmiðstöðinni X-ið á Stykkishólmi. Skítatúrnum lýkur svo í Bíóhöllinni á Akranesi á sunnudagskvöldið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.