Körfubolti

Pierce klár í slaginn með Boston

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Paul Pierce hjá Boston verður klár í slaginn annað kvöld þegar Boston sækir Atlanta heim í þriðja leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA.

Pierce fékk slæma byltu í öðrum leik liðanna og tognaði lítillega í baki, en hann fór í gegn um æfingu með liði sínu í dag og er í góðum málum.

Stuðningsmenn Boston fengu áfall þegar þeir sáu stjörnu sína liggja þjáða í gólfinu, en hann hefur nú náð sér að fullu. Boston er með 2-0 forystu í einvíginu eftir örugga sigra í fyrstu tveimur leikjunum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×