Körfubolti

LeBron James eitursvalur í nýrri auglýsingu

Kynningarherferð Nike íþróttavöruframleiðandans í kring um körfuboltamanninn LeBron James hefur verið ansi tilkomumikil.

Fyrir stuttu var frumsýnd ný skóauglýsing með James í aðalhlutverki þar sem hann kynnir Nike Zoom LeBron IV skóna.

Sérstakur kúltúr hefur myndast í kring um skóauglýsingar NBA leikmanna, en segja má að hann hafi fyrst farið á fullt með Michael Jordan um miðjan níunda áratuginn.

Smelltu hér til að sjá nýjustu auglýsingu LeBron James fyrir Nike, en hún er sannarlega af svalari gerðinni. Þar er gert út á athöfn leikmannsins þegar hann ber kalk á hendurnar á sér fyrir leiki undir dynjandi tónlist.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×