Tónlist

Hádegistónleikar af stað að nýju

Antonía Hevesi og Gissur Páll Gissurarson Koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag.Fréttablaðið/Vilhelm
Antonía Hevesi og Gissur Páll Gissurarson Koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag.Fréttablaðið/Vilhelm

Fyrstu tónleikar vetrarins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, fara fram í hádeginu í dag. Þar stíga á stokk þau Antonía Hevesi píanóleikari og Gissur Páll Gissurarson tenór og flytja nokkur vel valin sönglög fyrir viðstadda.

Antonía er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar og hefur sett saman spennandi dagskrá fyrir veturinn, en á meðal gesta hennar verða söngfuglarnir Sólrún Bragadóttir, Edda Austmann, Elín Ósk Óskarsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson, svo einhverjir séu nefndir. Tónleikarnir fara fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og er aðgangur að þeim ókeypis.

Fyrsti gestur tónleikaraðarinnar, Gissur Páll, nam söng í Reykjavík og í Bologna á Ítalíu, en til gamans má geta þess að frumraun hans á sviði var þegar hann fór með titilhlutverkið í söngleiknum Oliver Twist, þá aðeins ellefu ára gamall. Árið 2006 hélt Gissur sína fyrstu einsöngstónleika hérlendis í Salnum í Kópavogi við góðar undirtektir. Síðan þá hefur hann komið fram á tónleikum og í sýningum á Ítalíu og í Þýskalandi auk Íslands.

Tónleikar Antoníu og Gissurar hefjast kl. 12 í dag. Þeir eru sniðnir að þörfum þeirra sem hafa áhuga á að lyfta vinnudeginum upp á hærra plan með sérlega menningarlegu hádegishléi.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.