Tónlist

Fyrsta alvöru sólóplatan

Guðmundur Pétursson Hefur gefið út Ologies, sem telst vera hans fyrsta alvöru sólóplata.
Guðmundur Pétursson Hefur gefið út Ologies, sem telst vera hans fyrsta alvöru sólóplata. fréttablaðið/arnþór

Gítarleikarinn snjalli Guðmundur Pétursson hefur gefið út sólóplötuna Ologies. Hann segir að hún sé fyrsta alvöru sólóplata sín en fyrir mörgum árum gaf hann út tilraunakennda plötu sem fór frekar hljótt um.

„Hún tafðist í margar vikur í framleiðslu út af gjaldeyriskreppu," segir hann um nýju plötuna. „Framleiðslan var komin það langt að það var engin ástæða til að snúa aftur en hún fór í gang á óheppilegum tíma."

Á plötunni blandar Guðmundur saman margvíslegum stefnum, þar á meðal rokki, djassi, kvikmynda- og heimstónlist og óhefðbundinni tónlist. Honum til halds og trausts eru meðal annars Matthías Hemstock trommu- og slagverksleikari, Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari og Styrmir Hauksson hljóðhönnuður. Að sögn Guðmundar fór gríðarlegur tími í gerð plötunnar, sem hann byrjaði að semja í byrjun síðasta árs. Eftir að hafa unnið í henni í heilt ár notaði hann síðastliðið sumar í eftirvinnslu.

Guðmundur stefnir á tónleikahald eftir áramót og er þegar búinn að setja saman nýja hljómsveit, sem bætist í hóp þeirra fjölmörgu sveita sem hann hefur spilað með í gegnum tíðina.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.