Tónlist

Fyrsta plata Merzedes Club í búðir á morgun

Langþráður frumburður hljómsveitarinnar Merzedes Club lítur dagsins ljós á morgun, þegar platan „I wanna touch you" kemur út. Slagara á borð við „Ho ho ho we say hey hey hey" og „Meira frelsi" þarf vart að kynna fyrir mörgum, en þau eru bæði á plötunni. Titillagið „I wanna touch" you hefur einnig vermt sæti á flestum vinsældalistum landsins. Nýjustu afurðina, „See me now", er einnig að finna á plötunni, ásamt fleiri verðandi smellum.

Sveitin heldur nú í kynningarferð mikla sem hefst á Sjallanum á Akureyri annað kvöld. Köldið eftir hnykla þau Rebekka, Gill, Ceres 4, Gaz-Man og Partý-Hanz vöðvana með Sálinni á Húnavöku á Blönduósi, auk þess sem þau halda tónleika fyrr um daginn.

Lagst verður í stærri landvinninga um miðjan mánuðinn þegar sveitin heldur utan og spilar fyrir landa sína og aðra í Portúgal.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.